Á árinu 2009 var samþykkt ný og endurbætt menningarstefna Reykjavíkurborgar. Stefnumótunin var á höndum menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar. Framkvæmd verkefnisins einkenndist af miklu samráði og við endurskoðun stefnunnar var leitað samráðs við ýmsa aðila. Haldnir voru stærri samráðsfundir snemma vors 2008, þar sem fjölbreyttum hópi fólks var boðið að taka þátt í hugarflugsvinnu með framtíðarsýn menningarlífs Reykjavíkur í huga og í framhaldi af því störfuðu nokkrir hópar að hugmyndavinnunni. Þegar drög að markmiðum og leiðum stefnunnar höfðu verið mótuð í lok nóvember 2008, voru þau send til ýmissa hagsmunasamtaka og menningarstofnana í Reykjavík, hverfisráða, íbúasamtaka, ásamt annarra sviða Reykjavíkurborgar og kallað eftir athugasemdum. Einnig voru drögin birt á vef Reykjavíkurborgar og almenningur hvattur til að tjá sig um drögin þar.
Hvað hefur breyst frá fyrri stefnumörkun? Nefna má helstu atriðin, í fyrsta lagi er búið að gera stefnuna mun aðgengilegri, hún er meira útskýrandi en áður var sem er verulega til bóta þar sem fyrri stefnumörkum var nokkuð knöpp.
Í öðru lagi er mikil viðurkenning falin í stefnunni, sem lýtur að því að viðurkennt er að menningarlífið í borginni sé mikilvægur hluti efnahags- og atvinnulífs borgarinnar og bæta þurfi úr sýn á hagræn áhrif menningar á samfélagið.
Í þriðja lagi er stefnan að ákveðnu leiti “afskiptasöm” og fjallar um aukið samráð í borginni um hvernig hægt er að vinna að verkefnum í samráði og samstarfi milli sviða, ráða, stofnana og annarra aðila.
Yfirskrift menningarstefnunnar er Menning er mannrækt og leiðarljós hennar er; Reykjavík eflist sem höfuðborg menningar í landinu. Sjálfsmynd borgarinnar byggi á menningararfi, frjórri hugsun og frumkvæði. Menningarlífið einkennist af fjölbreytni og virkri þátttöku íbúa og gesta.
Menningarstefnan hefur á fáum mánuðum haft áhrif á uppbyggingu menningarstarfsins í borginni sérstaklega þar sem verulega mætti bæta um betur. Samráð milli sviða er mun meira og bæði menntasvið og leikskólasvið hafa tekið virkan þátt í að framfylgja ýmsum markmiðum í samvinnu við menningarstofnanir Reykjavíkurborgar. Menningarstefnuna er hægt að skoða á vef Reykjavíkurborgar og ég hvet til þess að þeir sem hafa áhuga geri það.
Það er mín sýn á þessi mál að með skýrri og hnitmiðaðri stefnumörkun eins og menningarstefnunni getum við náð meiri árangri en verið hefur. Sérstaklega var horft til þess að markmiðin og leiðir að markmiðum væru mælanleg og hægt að meta árangurinn af stefnumótuninni að þremur árum liðnum.
Höfundur: Áslaug María Friðriksdóttir; formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar og varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.